Anselmo og Haney á sviði með Randy Blythe.
Anselmo og Haney á sviði með Randy Blythe. — YouTube
Sættir Ugglaust hafa margir aðdáendur Pantera komist við þegar þeir ýmist urðu vitni að eða fréttu síðar af því að Rita Haney, kærasta Dimebags heitins Darrells, hefði stigið á svið með bandaríska málmbandinu á tónleikum í Houston og tekið undir í viðlagi slagarans Walk

Sættir Ugglaust hafa margir aðdáendur Pantera komist við þegar þeir ýmist urðu vitni að eða fréttu síðar af því að Rita Haney, kærasta Dimebags heitins Darrells, hefði stigið á svið með bandaríska málmbandinu á tónleikum í Houston og tekið undir í viðlagi slagarans Walk. Randy Blythe úr Lamb of God var þarna líka. Pantera leystist upp vegna ágreinings Phils Anselmos söngvara og bræðranna Dimebags og Vinnies Pauls og sá fyrstnefndi var ekki velkominn í útför Dimebags 2004. Síðan hafa þau Rita slíðrað sverðin.