Oddný Anna Björnsdóttir
Oddný Anna Björnsdóttir
Yfirlýsing Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra í gær um að ekkert yrði af boðaðri hækkun á gjaldskrá Matvælastofnunar (MAST), að minnsta kosti um sinn, féll í góðan jarðveg hjá Samtökum smáframleiðenda matvæla

Yfirlýsing Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra í gær um að ekkert yrði af boðaðri hækkun á gjaldskrá Matvælastofnunar (MAST), að minnsta kosti um sinn, féll í góðan jarðveg hjá Samtökum smáframleiðenda matvæla.

„Eins og gefur að skilja fögnuðum við ákaft þegar við lásum yfirlýsingu Svandísar á facebooksíðu hennar,“ sagði Oddný Anna Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Beint frá býli og Samtaka smáframleiðenda matvæla á Íslandi, í samtali við mbl.is.

Þar er einnig haft eftir henni að þetta sýni og sanni að það borgi sig að láta í sér heyra og mótmæla kröftuglega í málum sem þessu, sem sé einmitt megintilgangurinn með samtökum þeirra. „Þetta er mikill léttir og gefur meiri fyrirsjáanleika inn í sláturtíðina,“ sagði hún.

Ummælin sem Svandís lét falla á Facebook eru svohljóðandi: „Undanfarna daga hefur verið rætt um mögulega hækkun á gjaldskrá Matvælastofnunar og hugsanleg áhrif þeirrar hækkunar. Af því tilefni vil ég taka fram að ég hef ekki staðfest hækkun á gjaldskrá og hyggst ekki gera það að svo stöddu.“

Í samtali við mbl.is spyr Oddný Anna hvort ekki séu tækifæri til að hagræða, til dæmis með nútímatækni, til að koma í veg fyrir að þessi hækkun verði ákveðin í framtíðinni.

Hún bendir einnig á að meðal annars væri mögulegt að hafa eftirlit í gegnum myndavélabúnað, sérstaklega í minni sláturhúsum.

„Nú vonum við bara að ráðherra vinni með MAST að því að innleiða rafrænt eftirlit, að minnsta kosti í minni sláturhúsum, og byggja meira á áhættumati og innra eftirliti,“ sagði Oddný Anna og bætti því við að nauðsynlegt væri að vera vakandi yfir því hvort tilteknir hlutar eftirlits væru nauðsynlegir og stuðluðu í raun að auknu matvælaöryggi og dýravelferð.

Áformuð gjaldskrárhækkun MAST hefur víða verið gagnrýnd. Þannig sagði Bjarni Jónsson alþingismaður og samflokksmaður matvælaráðherra að í þessu máli birtist MAST „eins og algjört nátttröll“. Með hækkuninni væri verið að bregða fæti fyrir það góða starf sem unnið væri víða.