Upp Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta fór upp um eitt sæti.
Upp Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta fór upp um eitt sæti. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu færðist upp um eitt sæti á heimslista Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, og er nú í 14. sæti á listanum sem gefinn var út í gær. Frá útgáfu síðasta lista í júní, þar sem Ísland var í 15

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu færðist upp um eitt sæti á heimslista Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, og er nú í 14. sæti á listanum sem gefinn var út í gær. Frá útgáfu síðasta lista í júní, þar sem Ísland var í 15. sæti, hefur liðið spilað tvo vináttuleiki. Tapaði íslenska liðið 1:2 gegn Finnlandi og vann svo Austurríki 1:0. Ísland hefur aldrei komist ofar en í 14. sæti á heimslistanum og aldrei farið neðar en í 22. sæti.