Spræk Söngkonan Ann Wilson, oftast kennd við rokkbandið Heart, er hvergi farin að slá af enda þótt hún sé lögformlega komin á eftirlaunaaldur. Í lok næsta mánaðar er væntanleg ný plata frá henni og nýju bandi hennar, Tripsitter. Nefnist hún Another Door sem staðfestir auðvitað að söngkonan er ennþá leitandi í sinni list. Þá söng hún nýlega dúett með David Draiman úr Disturbed í laginu Don’t Tell Me og kemur við sögu á væntanlegri rokkplötu frá Dolly okkar Parton. Loks má geta þess að Wilson verður í öndvegi á árlegum góðgerðartónleikum, Women Who Rock, í Pittsburgh, Pennsylvaníu, 21. október næstkomandi.