Guðni Valur Guðnason, Íslandsmethafi í kringlukasti, var ekki sáttur við árangur sinn á HM í frjálsum, en hann endaði í 22. sæti í greininni í Búdapest um síðustu helgi. Guðni var nokkru frá sínu besta, en hann ætlar sér verðlaun á stórmóti í framtíðinni

Guðni Valur Guðnason, Íslandsmethafi í kringlukasti, var ekki sáttur við árangur sinn á HM í frjálsum, en hann endaði í 22. sæti í greininni í Búdapest um síðustu helgi. Guðni var nokkru frá sínu besta, en hann ætlar sér verðlaun á stórmóti í framtíðinni. „Planið er að koma með einhverja skartgripi heim. Það er hálsmen sem maður fær og ég væri mikið til í eitt svoleiðis,“ sagði Guðni m.a. við Morgunblaðið. » 37