Danmörk Gylfi Þór Sigurðsson færist nær Lyngby í Danmörku.
Danmörk Gylfi Þór Sigurðsson færist nær Lyngby í Danmörku. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson hefur náð munnlegu samkomulagi við Íslendingalið Lyngby, sem leikur í dönsku úrvalsdeildinni. Vegna fréttaflutnings undanfarna daga um að Gylfi Þór væri kominn til Danmerkur og að Freyr Alexandersson…

Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson hefur náð munnlegu samkomulagi við Íslendingalið Lyngby, sem leikur í dönsku úrvalsdeildinni. Vegna fréttaflutnings undanfarna daga um að Gylfi Þór væri kominn til Danmerkur og að Freyr Alexandersson knattspyrnustjóri Lyngby hefði mikinn áhuga á að semja við miðjumanninn fann danska félagið sig knúið til þess að tjá sig um stöðu mála. Staðfesti það í gær ofangreindar fregnir.