Hildur Elísa Jónsdóttir
Hildur Elísa Jónsdóttir
Sýning Hildar Elísu Jónsdóttur Seeking Solace verður opnuð í Úthverfu á Ísafirði kl. 16 í dag. Á sýningunni er skyggnst inn í andstæða heima faglegs ytra byrðis atvinnulífsins og innri átaka nútímafólks og í verkinu deila starfsmenn á skrifstofu…

Sýning Hildar Elísu Jónsdóttur Seeking Solace verður opnuð í Úthverfu á Ísafirði kl. 16 í dag. Á sýningunni er skyggnst inn í andstæða heima faglegs ytra byrðis atvinnulífsins og innri átaka nútímafólks og í verkinu deila starfsmenn á skrifstofu djúp-persónulegum obinberunum, sungnum við gömul íslensk þjóðlög, eins og segir í tilkynningu. Sýningin stendur til 17. september. Listakonan verður viðstödd opnun sýningarinnar.