Meiddur Kristján Flóki Finnbogason meiddist á læri gegn Fylki.
Meiddur Kristján Flóki Finnbogason meiddist á læri gegn Fylki. — Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Óvíst er með þátttöku knatt­spyrnumannsins Kristjáns Flóka Finnbogasonar í lokaleikjum KR-inga á keppnistímabilinu. Þetta staðfesti hann í samtali við Morgunblaðið í gær en Kristján Flóki, sem er 28 ára gamall, meiddist á læri í 2:0-sigrinum gegn Fylki í 21

Óvíst er með þátttöku knatt­spyrnumannsins Kristjáns Flóka Finnbogasonar í lokaleikjum KR-inga á keppnistímabilinu. Þetta staðfesti hann í samtali við Morgunblaðið í gær en Kristján Flóki, sem er 28 ára gamall, meiddist á læri í 2:0-sigrinum gegn Fylki í 21. umferð Bestu deildarinnar í Vesturbænum á laugardaginn. Það væri bjartsýni að segja að ég muni ná að spila meira á þessu tímabili,“ sagði Kristján meðal annars.