Norður
♠ KG10
♥ –
♦ D96543
♣ ÁK95
Vestur
♠ 9
♥ ÁD10632
♦ KG82
♣ 83
Austur
♠ D86
♥ KG9854
♦ 7
♣ 742
Suður
♠ Á75432
♥ 7
♦ Á10
♣ DG106
Suður spilar 6♣.
Óskar ugla sló létt á lær sér: „Og svo segja menn að það borgi sig ekki að skipta um hest í miðri á!“ Fuglarnir fóru snemma á fætur á mánudaginn síðasta, sérstaklega til að horfa á BBO-leik Noregs og Kína í 8-liða úrslitum. Spilin voru dauf til að byrja með, en svo kom glaðningurinn að ofan.
Tor Eivind Grude og Geir Helgemo voru í NS á öðru borðinu. Helgemo opnaði á 1♠, vestur kom inn á 2♥ og Grude sagði 3♦. Austur stökk í 4♥ – pass og pass til Grude, sem lét 4♠ duga. Austur barðist í 5♥ og þegar sú sögn kom líka ódobluð yfir til Grude ákvað hann að herða taktinn (og skipta jafnvel um hest) – krafði í slemmu með 5G og bauð makker að stinga upp á öðrum lit.
Helgemo stakk upp á 6♣ og fékk þar alla slagina eftir hvasst tígulútspil. Spaðaslemma er hins vegar vonlaus með hjarta út.