Bandaríska tónlistarkonan Taylor Swift er fyrsta konan til þess að ná 100 milljónum spilana á einum mánuði á streymisveitunni Spotify. Þetta hefur BBC eftir Spotify. Swift er líka fyrsta konan til þess að ná fjórum plötum inn á bandaríska…
Bandaríska tónlistarkonan Taylor Swift er fyrsta konan til þess að ná 100 milljónum spilana á einum mánuði á streymisveitunni Spotify. Þetta hefur BBC eftir Spotify. Swift er líka fyrsta konan til þess að ná fjórum plötum inn á bandaríska topp-10-listann á sama tíma og einungis þriðji tónlistarmaðurinn til þess að ná þeim árangri. Hún gaf nýverið út endurgerð af plötunni Speak Now sem hefur trónað á toppnum bæði í Bandaríkjunum og á Bretlandi.