Iðunn Andrésdóttir
idunn@mbl.is
Sveitarfélagið Ölfus stofnaði Orkufélagið Títan ehf. í gær en Ölfus er á meðal orkuríkustu svæða á Íslandi og því horft til að efla orkunýtingu innan sveitarfélagsins, að sögn Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss og nýs framkvæmdastjóra Títans ehf.
Öll orkan nýtist á höfuðborgarsvæðinu
Elliði segir uppbyggingu í sveitarfélaginu stórfellda og íbúafjölda ört vaxandi og því sé mikilvægt að stuðla að frekari nýtingu orkunnar á svæðinu enda sé það með öllu ótækt að jafnorkuríkt land og Ísland standi frammi fyrir orkuskorti á næstu árum. „Þrátt fyrir að hér iði jörðin af orku þá höfum við ekki aðgengi að henni,“ segir Elliði. Fá svæði hafi verið virkjuð eða nýtt og þrátt fyrir að stærsta jarðvarmavirkjun í heimi, Hellisheiðarvirkjun, sé innan svæðisins nýtist öll sú orka á höfuðborgarsvæðinu.
Að sögn Elliða horfir félagið til nýtingar á Ölkelduhálsi, Ölfusdal og við Hlíðardalsskála þó að ekkert sé enn staðfest. Einnig hafi fyrirtækið borið sig upp við önnur orkufyrirtæki á landinu og sé áætlunin ekki að sveitarfélagið sjálft verði í þeim áhætturekstri sem orkuleit og -vinnsla getur verið, að sögn Elliða. Títan hyggist heldur finna sér reyndan samstarfsaðila sem hafi aðgang að þekkingu, fjármagni og tækjum til að vinna að verkefninu með sveitarfélaginu.
Ýmis orkufyrirtæki komi til greina en Elliði segir fyrirtækið fara hratt af stað og fundi með mögulegum samstarfsaðilum á næstu dögum. Það sé hins vegar hægara sagt en gert enda þurf fyrirtæki að hlaupa hindrunarhlaup vegna flókinna reglu- og eftirlitskerfa sem ákveðin öfl í landinu hafi komið á í tengslum við orkunýtingu.