— Pexels/Petar Starcevic
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ekki láta það orðspor sem fer af Brussel fyrir skrifræði skemma upplifun þína af þessari forvitnilegu borg. Sem helsta vígi Evrópusambandsins er Brussel staðsett í miðju heimsviðburða. Stórkostlegur matur og glæsileg torg setja borgina einnig í flokk áhugaverðustu áfangastaða sem völ er á

Ekki láta það orðspor sem fer af Brussel fyrir skrifræði skemma upplifun þína af þessari forvitnilegu borg. Sem helsta vígi Evrópusambandsins er Brussel staðsett í miðju heimsviðburða. Stórkostlegur matur og glæsileg torg setja borgina einnig í flokk áhugaverðustu áfangastaða sem völ er á.

Brussel er höfuðborg Belgíu og þangað flýgur Icelandair allan ársins hring. Þangað er flogið alla daga vikunnar í september, fimm daga vikunnar í októbermánuði en þrisvar sinnum í viku á ferðatímabilinu nóvember fram í mars. Brussel hefur upp á margt að bjóða jafnt að vetri sem sumri svo nú er um að gera að bóka ferðalagið og sækja borgina heim.

Glæsileiki Grand Place

Það er eins og töfrar umlyki hið fræga Grand Place í Brussel. Byggingarlistin við hellulagt torgið er ævintýri líkust og hjúpar mann fortíðarþrá. Ríkmannleg samkomuhúsin eru frá síðari hluta 17. aldar og ráðhúsið Hotel de Ville, sem er frá 15. öld, er sannkallað konfekt fyrir augað. Komdu aftur að kvöldi til þegar ljósin umbreyta ásýnd húsanna og sveipa þau enn dulúðugri blæ.

Frá Grand Place er stutt ganga í gömul, falleg hverfi Ilot Sacré og Sablon. Ef þú hefur enn ekki fengið nóg af byggingarlist geturðu kannað Notre Dame du Sablon, mikilfenglega síðgotneska kirkju frá 15. öld. Fjölmörg söfn eru í borginni og eitt þeirra er Musées Royaux des Beaux-Art. Hluti þess er tileinkaður verkum gömlu meistaranna, en þar er einnig deild til heiðurs verkum súrrealistans, art nouveau-listamannsins og heimamannsins Rénes Magrittes.

Meira en bara moules-frites

Belgía er ekki stórt land en hefur þrátt fyrir það haft mikil áhrif á bragðskyn matgæðinga og bjórunnenda um allan heim. Belgískur bjór er dásamaður, þá sérstaklega Trappist-bjór sem bruggaður er í munkaklaustrum, og sú frægð sem fer af borginni fyrir óviðjafnanlega gott súkkulaði er rækilega verðskulduð.

Frægasti réttur Belga er vafalaust kræklingur og franskar, eða moules-frites. Á svæðinu við fiskmarkaðinn á St. Catherine eru margir frábærir staðir þar sem hægt er að smakka þennan rétt sem og annað ljúffengt sjávarfang.

Hér finnur þú einnig bístró sem framreiða klassíska evrópska rétti í gömlum, viðarklæddum matsölustöðum í bland við háklassaveitingastaði prýdda Michelin-stjörnum. Nýjum kaffihúsum fjölgar ört í Brussel þar sem matur frá öllum heimshornum er á boðstólum. Fyrir þá sem vilja gæða sér á belgískum götumat er tilvalið að koma við á friterie eða frietkot og fá sér einn skammt af frites en það eru franskar sem Belgar segjast reyndar hafa fundið upp á og ættu því með réttu að nefnast „belgískar“.

Heimsæktu heimsborg sem bragð er að

Það sem ætti að vera efst á innkaupalistanum þínum meðan á dvölinni stendur er: Súkkulaði, bjór og blúnda. Þetta eru algengustu belgísku minjagripirnir. Place du Grand Sablon er fallegt torg frá 17. öld og er eftirsóttasti staðurinn fyrir belgískt súkkulaði en þar eru allir helstu „chocolatiers“ með verslanir. Það er stórskemmtilegt að ráfa um Sablon-hverfið en þar eru fjölmargar antíkbúðir og flottar verslanir sem búa yfir fjölbreyttu úrvali. Um helgar rís svo markaður á torginu þar sem spennandi antíkmunir og gamlar bækur eru á boðstólum.

Galeries Royales Saint-Hubert er frá 19. öld og þar eru margar fínar og glæsilegar verslanir, enda húsnæðið einstakt þar sem yfirbyggð súlnagöng með glerþaki fara með aðalhlutverkið. Ef þig langar á götumarkaði þá er heppnin með þér! Í Brussel er mikið úrval af mörkuðum, allt frá blómasölum sem koma sér fyrir nokkrum sinnum í viku á Grand Place til stórra sunnudagsmarkaða við Gare du Midi-lestarstöðina.

Skannaðu kóðann og bókaðu ferðalagið til Brussel með Icelandair strax í dag.

Brussel – Belgía

Fólksfjöldi: 1,2 milljónir (2016)

Stærð: 161,4 km2

Samgöngur: Neðanjarðarlestirnar í Brussel eru fljótlegasti og þægilegasti mátinn til að ferðast á milli helstu áfangastaða í borginni.

Gjaldmiðill: Evra

Spennandi hverfi: Ómissandi er að heimsækja og upplifa Ixelles og Dansaert í Brussel.