Vísbendingar eru um að Skaftárhlaupið hafi náð hámarki í gær. Rennsli Skaftár við Sveinstind mældist tæpir 700 rúmmetrar á sekúndu klukkan 15 í gær en um 750 rúmmetrar á sekúndu í gærmorgun. Þá staðfestu athuganir gerðar í flugi grunsemdir vísindamanna um að upptök hlaupsins væru í eystri Skaftárkatlinum.
Lögreglan á Suðurlandi aflétti í gær vegalokunum í grennd við ána sem gripið var til á þriðjudag. Í tilkynningu lögreglunnar segir að engu að síður megi búast við vatnavöxtum, ekki síst í ljósi úrkomuspár á svæðinu næstu daga. Þá sé enn hætta á gasmengun við Skaftá og er varað við að dvelja nálægt bökkum hennar.