Dagmál Eyþór Arnalds ræðir stjórnmálin bæði í borg og ríki.
Dagmál Eyþór Arnalds ræðir stjórnmálin bæði í borg og ríki. — Morgunblaðið/Hallur
Ríkisstjórnarflokkunum hefur mistekist að finna samnefnara til þess að binda ríkisstjórnarsamstarfið saman að nýju eftir heitt pólitískt sumar. Þess í stað leggja flokkarnir áherslu á þau mál sem mestur ágreiningur er um, sem varla gefur góða von um framhaldið

Andrés Magnússon

andres@mbl.is

Ríkisstjórnarflokkunum hefur mistekist að finna samnefnara til þess að binda ríkisstjórnarsamstarfið saman að nýju eftir heitt pólitískt sumar. Þess í stað leggja flokkarnir áherslu á þau mál sem mestur ágreiningur er um, sem varla gefur góða von um framhaldið.

Þetta kemur fram í viðtali Dagmála við Eyþór Arnalds, fv. oddvita Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Hann telur þó að stjórnin geti vel fundið slík mál til þess að sameinast um og þar blasi baráttan við verðbólguna við.

Vandræði Reykjavíkurborgar komu einnig til umræðu, meðal annars út frá borgarlínunni, sem fjármálaráðherra sagði nýverið að hefði ekki fjárhagslegan grundvöll lengur. Eyþór segir að það hafi verið ljóst fyrir nokkru, kostnaðurinn hafi blásið út. Sumir segi að hann sé stjarnfræðilegur, en Eyþór segir hann ennþá meiri og bendir á að Indverjar hafi nýverið skotið geimfari með jeppa á suðurskaut tungslins, en kostnaðurinn við það hafi ekki verið 200 milljarðar króna eða meira, heldur jafnvirði 10 milljarða!

Hann telur að þar bíði mikill skipulagsvandi, sem muni taka tíma að vinda ofan af. Hér og nú sé hins vegar húsnæðiskreppa, sem þoli enga bið.

Höf.: Andrés Magnússon