Anton Guðmundsson
Anton Guðmundsson
Hækka þarf tafarlaust tolla á innflutt lambakjöt til þess að verja íslenska bændur sem eru að berjast fyrir tilvist sinni á markaðnum.

Anton Guðmundsson

Um þessar mundir eru bændur að fara að sækja fé sitt af fjalli og skila inn til slátrunar. Heilnæmari fæðu er vart að finna í heiminum en íslenskt lambakjöt. Íslenska sauðféð býr við aðstæður sem eru einstakar og þekkjast ekki víðast hvar. Villibráðin sem lifir úti í náttúrunni og drekkur íslenska lindarvatnið. Í landbúnaði hérlendis eru sýklalyf og eiturefni ekki mælanleg.

Í vor fékk íslenskt lambakjöt upprunavottun frá Evrópusambandinu. Um er að ræða vottun með tilvísun til uppruna eða „Protected Designation Of Origin“ (PDO), og fær íslenskt lambakjöt nú að bera merki vottunarinnar í markaðssetningu. Það á að stuðla að neytendavernd, auka virði afurða og koma í veg fyrir óréttmæta viðskiptahætti.

Innflutningur á lambakjöti hefur færst í vöxt á undanförnum árum og er það bæði selt í matvöruverslunum hérlendis og einnig á veitingamarkaði, meðal annars mötuneytum og veitingahúsum. Færst hefur í vöxt að minni kjötvinnslur kaupi slíkar afurðir og endurselji á veitingamarkaði, þíði kjötið sem kemur frosið til landsins, leggi í kryddlög og selji svo til stóreldhúsa og matvöruverslana.

Slíkt athæfi getur verið afar villandi fyrir neytendur, þar sem pakkningar sem erlenda lambakjötið eru í eru oft á tíðum með íslenskum fánaröndum eða allavega íslenskt nafn á kjötvinnslunni.

Þú, sem neytandi, getur ekki verið þess fullviss þegar þú borðar á veitingahúsi eða í mötuneyti á þínum vinnustað að lambakjötið sé frá Íslandi. Þetta er sá veruleiki sem við búum við í dag.

Fjögur fyrirtæki skiptu með sér tollkvóta fyrir innflutning á 345.000 kg af kinda- eða geitakjöti á tímabilinu 1. júlí 2022 til 30. júní 2023. Meðalverð tollkvótans var ein króna. Stjörnugrís ehf. fékk úthlutað 280.929 kg, Ekran ehf. fékk 40.000 kg, Innnes ehf. 20.000 kg og Samkaup 4.071 kg.

Á tímabilinu frá júlí 2022 til og með febrúar 2023 hafa 14.606 kg af kinda- eða geitakjöti verið flutt hingað til lands, langmest, eða 14.209 kg, frá Spáni.

Hækka þarf tafarlaust tolla á innflutt lambakjöt til þess að verja íslenska bændur sem eru að berjast fyrir tilvist sinni á markaðnum þar sem innflytjendur vinna markvisst að því að undirbjóða íslenska bændur.

Með því að setja skorður á innflutninginn og hækka verndartolla stuðlum við sem þjóð að betri starfsskilyrðum bænda og vinnum markvisst að því að tryggja sjálfbærni og um leið fæðuöryggi íslensku þjóðarinnar.

Höfundur er oddviti Framsóknar í Suðurnesjabæ.