Orri Steinn Óskarsson er eini nýliðinn í leikmannahópi íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu sem mætir Lúxemborg og Bosníu í J-riðli undankeppni EM 2024 í september. Ísland mætir Lúxemborg í Lúxemborg hinn 8

Orri Steinn Óskarsson er eini nýliðinn í leikmannahópi íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu sem mætir Lúxemborg og Bosníu í J-riðli undankeppni EM 2024 í september. Ísland mætir Lúxemborg í Lúxemborg hinn 8. september og svo Bosníu á Laugardalsvelli þremur dögum síðar, 11. september. Åge Hareide, þjálfari íslenska liðsins, tilkynnti 23 manna leikmannahóp sinn fyrir verkefnið á fjarfundi með blaðamönnum í gær. »76