Landsliðsmaðurinn Willum Þór Willumsson framlengdi í gær samning sinn við hollenska knattspyrnufélagið Go Ahead Eagles til ársins 2026. Willum gekk í raðir félagsins fyrir síðustu leiktíð frá Bate Borisov í Hvíta-Rússlandi og skoraði átta mörk á sínu fyrsta tímabili með liðinu
Landsliðsmaðurinn Willum Þór Willumsson framlengdi í gær samning sinn við hollenska knattspyrnufélagið Go Ahead Eagles til ársins 2026. Willum gekk í raðir félagsins fyrir síðustu leiktíð frá Bate Borisov í Hvíta-Rússlandi og skoraði átta mörk á sínu fyrsta tímabili með liðinu. Willum, sem er 24 ára, er uppalinn hjá Breiðabliki. Hann á þrjá A-landsleiki fyrir Íslands hönd og 21 landsleik fyrir yngri landsliðin.