Hvernig te ætli Dolly okkar drekki?
Hvernig te ætli Dolly okkar drekki? — AFP/Suzanne Cordeiro
Te Sveitasöngkonan ástsæla Dolly Parton afþakkaði teboð frá sjálfri Katrínu prinsessu af Wales þegar hún var stödd nýlega í Lundúnum. Vegna anna. „Hún var hvort eð er ekki að fara að kynna rokkplötuna mína,“ spaugaði goðsögnin í samtali við BBC Radio 2

Te Sveitasöngkonan ástsæla Dolly Parton afþakkaði teboð frá sjálfri Katrínu prinsessu af Wales þegar hún var stödd nýlega í Lundúnum. Vegna anna. „Hún var hvort eð er ekki að fara að kynna rokkplötuna mína,“ spaugaði goðsögnin í samtali við BBC Radio 2. Dolly vonast þó til að drekka te með Katrínu síðar. „Það var sætt af henni að bjóða mér og vonandi kemst ég einhvern daginn – það yrði gaman.“