Listsýningin Heima/Home verður opnuð í Hillebrandtshúsi í dag, laugardag kl. 14. „Um er að ræða samsýningu fjölda áhuga- og atvinnulistafólks á norðvesturlandi þar sem útgangspunkturinn er hvað „heima“ stendur fyrir,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að lifandi tónlist verði leikin við opnunina.
Einnig er minnt á markað í Krúttinu í gamla bænum á Blönduósi, sem haldinn verður á milli kl. 14 og 17 sama dag. „Hér er kjörið tækifæri til að eiga góða stund saman í gamla bænum og njóta þess sem þar er boðið upp á!“ Sýningin verður opin alla daga út septembermánuð milli kl. 14 og 17.