Breska glamúrfyrirsætan Katie Price, einnig þekkt sem Jordan, er í veseni þessa dagana. Hún var komin með staðgöngumóður til að ganga með sjötta barnið sitt þegar babb kom í bátinn. Staðgöngumóðirin, sem sjálf á fjögur börn, var búin að samþykkja munnlega að ganga með barn fyrir Katie en eftir að hafa hitt hana í eigin persónu hætti hún við.
Ástæðan er sú að Katie sýndi bæði henni og börnum hennar mikinn dónaskap. Staðgöngumóðirin, sem við vitum engin frekari deili á, sagðist hafa verið spennt að hitta Katie í eigin persónu, þar sem hún væri mikill aðdáandi hennar, en Katie hafi hins vegar komið fram við hana eins og „skít“, eins og hún orðaði það.
Lestu allt um Stjörnufréttir Evu Ruzu á K100.is.