Listaverk eftir Kjarval, Gunnlaug Blöndal, Louisu Matthíasdóttur, Þorvald Skúlason, Ásgrím Jónsson og Svavar Guðnason verða meðal annars boðin upp hjá Fold uppboðshúsi mánudaginn 4. september kl. 18.30
Listaverk eftir Kjarval, Gunnlaug Blöndal, Louisu Matthíasdóttur, Þorvald Skúlason, Ásgrím Jónsson og Svavar Guðnason verða meðal annars boðin upp hjá Fold uppboðshúsi mánudaginn 4. september kl. 18.30. Alls verða boðin upp 89 úrvalsverk og er sýning verkanna þegar hafin í uppboðshúsinu. Þau má skoða á hefðbundnum afgreiðslutíma en auk þess verður opið sunnudaginn 3. september kl. 12-16.