line-height:150%;font-family:"Aachen",serif">Ef e-ð stendur í manni af græðgi er bitinn fastur í hálsinum

Ef e-ð stendur í manni af græðgi er bitinn fastur í hálsinum. (Getur líka þýtt að manni verði svarafátt eða að maður eigi erfitt með e-ð.) En geti maður ekki gleymt e-u sem manni hefur verið gert og sé enn hundfúll „stendur“ það ekki heldur situr í manni. „Ég féll strax úr Fegurðarsamkeppni karla og það situr enn í mér.“