Anna Þórunn Sigurjónsdóttir fæddist 17. október 1967. Hún lést 3. ágúst 2023. Útförin fór fram 17. ágúst 2023.

Elsku hjartans Anna Þórunn okkar, fallin frá svo alltof snemma.

Leiðir okkar fimm lágu saman á misjöfnum tímum en við tengdumst allar þegar við fórum að vinna saman hjá Icelandair í Ncc 2016.

Ljúfari manneskju er erfitt að finna, alltaf með bros á vör, stutt í húmorinn og skemmtileg tilsvör, og mjög smitandi hlátur.

Alltaf með þetta jafnaðargeð, aldrei pirruð eða í einhverju stressi.

Anna Þórunn var mikil smekkmanneskja og gerði allt fallegra, svo natin við að gera dúllulegt í kringum sig og heimili hennar og Friðriks bar augljósan vott um það. Anna Þórunn var mikil fjölskyldumanneskja og það var svo notalegt að hlusta á hana tala um fólkið sitt, talaði svo hlýlega um þau og „hann Friðrik minn“.

Anna Þórunn átti svo auðvelt með að sjá spaugilegu hliðarnar á lífinu og sagði okkur oft frá einhverju sem hún „klúðraði“ eða bara misskildi smá, eins og skóhornið fína sem þjónaði fyrst hlutverki sleifar í eldhúsinu, það sem við engdumst um af hlátri þegar hún í rólegheitum sagði okkur frá þessu þegar við vorum að fara frá henni og þurftum að nota „sleifina“.

Við erum óendanlega þakklátar fyrir að hafa fengið að kynnast Önnu Þórunni og hafa fengið að njóta samveru hennar í leik og starfi.

Elsku Friðrik, Karen, Sigurjón, Kamilla og aðrir sem eiga um sárt að binda við andlát elsku Önnu Þórunnar. Við sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur, blessuð sé minning hennar

Ragnhildur (Raggý),
Mille, Inga Ósk
og Ingibjörg.