Par Rosy McEwen og Giles Terera.
Par Rosy McEwen og Giles Terera.
Uppfærsla Breska þjóðleikhússins á harmleiknum Óþelló eftir William Shakespeare í leikstjórn Clints Dyers verður sýnd í Bíó Paradís í kvöld kl

Uppfærsla Breska þjóðleikhússins á harmleiknum Óþelló eftir William Shakespeare í leikstjórn Clints Dyers verður sýnd í Bíó Paradís í kvöld kl. 19 og á sunnudag kl. 15. Með hlutverk Óþellós fer Giles Terera, Desdemónu leikur Rosy McEwen og Jagó leikur Paul Hilton. Uppsetningin hlaut góða dóma í bresku pressunni. Rýnir The Guardian sagði Dyer takast að nútímavæða verkið og rýnir Evening Standard var þeirrar skoðunar að Terera „geislaði í þessari kraftmiklu, hrottafengnu sviðsetningu.“