Sólveig María Gunnlaugsdóttir fæddist 29. september 1939. Hún lést 6. ágúst 2023. Útför hennar fór fram 18. ágúst.

Ég kynntist Sólveigu Maríu þegar ég var svo lánsöm að fá vinnu í Álfheimabakaríinu. Hún vann þar, það fór
svo að við unnum þar saman í 17 ár og aldrei bar neinn skugga þar á. Ég saknaði hennar mjög þegar hún hætti. En vinátta okkar var sönn, fram á síðasta dag. Ég kveð kæra vinkonu með virðingu og þakklæti.

Lára Guðmundsdóttir.