Rolling Stones hefur loks gengist við því að næsta hljóðversplata sveitarinnar sé væntanleg og að hún muni heita Hackney Diamonds líkt og orðrómur sagði til um. Variety greinir frá því að allar nánari upplýsingar verði kynntar í dag á sérstökum YouTube-blaðamannafundi í Hackney í austurhluta Lundúna þar sem eftirlifandi meðlimir sveitarinnar, Mick Jagger, Keith Richards og Ron Wood, verða til svara í streymisviðtali við Jimmy Fallon stjórnanda Tonight Show. Sveitin hefur um árabil safnað lögum á breiðskífuna og heyrst hefur að á plötunni verði að finna að minnsta kosti eitt lag með eftirlifandi meðlimum Bítlanna, þeim Ringo Starr og Paul McCartney.