Feðgar Sævar Knútur Hannesson er formaður Hrollaugs – smábátafélags Hornafjarðar og Hannes Ingi Jónsson ritari þess. Saman gera þeir út Sigurbjörgu SF og segja strandveiðar skipta sköpum fyrir byggð eins og Höfn.
Feðgar Sævar Knútur Hannesson er formaður Hrollaugs – smábátafélags Hornafjarðar og Hannes Ingi Jónsson ritari þess. Saman gera þeir út Sigurbjörgu SF og segja strandveiðar skipta sköpum fyrir byggð eins og Höfn. — Morgunblaðið/Gunnlaugur
Feðgarnir og sjómennirnir Sævar Knútur Hannesson og Hannes Ingi Jónsson eru vanir að starfa saman en Sævar fór fyrst með pabba sínum á sjó um fimm ára og þeir hafa á fullorðinsaldri verið saman í áhöfninni á Sigurði Ólafssyni SF, en eru nú hvor á sínu skipinu

Gunnlaugur Snær Ólafsson

gso@mbl.is

Feðgarnir og sjómennirnir Sævar Knútur Hannesson og Hannes Ingi Jónsson eru vanir að starfa saman en Sævar fór fyrst með pabba sínum á sjó um fimm ára og þeir hafa á fullorðinsaldri verið saman í áhöfninni á Sigurði Ólafssyni SF, en eru nú hvor á sínu skipinu. Saman hafa þeir einnig gert út smábátinn Sigurbjörgu SF og tóku báðir á síðasta ári sæti í stjórn Hrollaugs – smábátafélags Hornafjarðar, Sævar sem formaður og Hannes sem ritari.

„Viltu ekki bara kíkja til mín í kaffi, pabbi verður hérna líka,“ segir Sævar er blaðamaður slær á þráðinn. Ekki er hægt að hafna slíku boði enda blaðamenn ávallt kaffiþyrstir.

Sævar var kjörinn formaður Hrollaugs – smábátafélags Hornafjarðar á síðasta ári og var faðir hans, Hannes, ritari. Þeir segja þetta ekki endilega hafa gerst af ásetningi. „Það var lítill áhugi á að taka við þessu og okkur þótti leiðinlegt ef þetta skyldi vera að fara að deyja út. Fúsi (Vigfús Ásbjörnsson) var búinn að sinna formennsku lengi og það þurfti eitthvað að gera því þetta félag á sér sögu hérna á Hornafirði og við erum sökkerar fyrir sögu,“ segir Sævar og hlær.

Við borðstofuborðið eru þeir feðgar meira en tilbúnir að ræða helstu baráttumál smábátasjómanna á Hornafirði. „Við viljum bara 48 daga. Það er skýlaus krafa,“ segir Hannes. Bendir hann á kröfuna um að strandveiðibátum um allt land verði tryggðir 12 veiðidagar á mánuði í þá fjóra mánuði sem veiðin stendur yfir (maí, júní, júlí og ágúst). Síðasta strandveiðitímabil endaði frekar snemma, 12. júlí, og á síðasta ári voru veiðar stöðvaðar 21. júlí.

„Okkur sýnist hafa komið mjög lítið út úr þessum tillögum hjá henni Svandísi [Svavarsdóttur matvælaráðherra]. Það þarf þessa 48 daga og sleppa þessari hugmynd um svæðisskiptingu,“ segir Sævar sem kveðst jafnframt sannfærður um mikilvægi strandveiðanna til að hvetja fleiri í greinina.

48 dagar minnka óvissu

Sævar bendir á að hópur strandveiðisjómanna á Hornafirði sé hægt og rólega að komast á aldur og líklegur til að hætta störfum. Þörf sé á að fjölga yngri strandveiðisjómönnum, en að hefja útgerð er fjárfesting með mikla óvissu þegar veiðar eru stöðvaðar eins snemma og gert hefur verið undanfarin ár.

„Með 48 dögum minnkar öll óvissa og þá myndast möguleiki fyrir ungt fólk að byrja í sjávarútvegi, menn sjá þá kannski ástæðu til að komast inn í þetta og fyrir ungt fólk að geta byrjað í útgerð. Það er bara ekki hægt í dag. Það er verið að bjóða upp kvóta á sex þúsund krónur kílóið í litla kerfinu. Það þarf að vera tækifæri fyrir ungt fólk að komast inn í þetta. Það er ekkert fyrir alla að vera í átta-til-fjögur-vinnu og þetta gefur sveigjanleika í hvernig fólk vinnur fyrir sér, við erum eins mismunandi og við erum mörg,“ útskýrir Sævar.

„Það breyttist mikið hérna á Hornafirði með strandveiðunum. Þá fjölgaði svo mikið bátum,“ segir Hannes og rifjar upp að langflestir ef ekki allir sem höfðu verið í dagakerfinu gamla og fengu kvóta þegar því kerfi var breytt seldu og hættu útgerð.

„Það var algjört klúður, bara ávísun á að menn seldu strax,“ grípur Sævar fram í.

„Það voru mjög fáir smábátar áður en strandveiðarnar byrjuðu en það eru núna um 20 bátar á strandveiðunum,“ segir Hannes og kveðst undrandi á því að ekki sé meiri stuðningur við strandveiðar meðal stjórnmálamanna. „Sjálfstæðismenn gera út á frelsi einstaklingsins, þeir hamra á því. Frelsi einstaklingsins kemur hvergi betur í ljós en að vera trillukarl.“

Saman hófu feðgarnir að gera út Sigurbjörgu SF árið 2019, en ekki er ljóst hve lengi þeir fá að halda nafninu Sigurbjörg þar sem Rammi hf., sem nú hefur sameinast Ísfélagi Vestmannaeyja í Ísfélag hf., hefur haft einkaleyfi á nafninu. Þeir feðgar hafa til þessa fengið að nýta nafnið með leyfi en nú styttist í að Ísfélagið fái til landsins nýtt skip sem mun bera nafnið Sigurbjörg ÁR. Þótt nafnið kunni að verða annað eru feðgarnir hvergi hættir í útgerð.

Það hentaði þeim feðgum vel að fara saman í útgerð enda hafa þeir stundað sjósókn saman frá því að Sævar var smástrákur. Hafa þeir meðal annars verið saman í áhöfninni á Sigurði Ólafssyni SF þar sem Hannes hefur verið vélstjóri. En Sævar hætti í þeirri áhöfn til að komast á nýrra skip og er nú með fast pláss á Jónu Eðvalds SF sem Skinney-Þinganes hf. gerir út.

Hætta á að þekking glatist

Þeir eru sammála um að eins og strandveiðum er háttað nú sé ekki hægt að hafa fulla atvinnu af slíkum veiðum og því flestir sem taka þátt í strandveiðum einnig í öðrum störfum eða í annarri vertíðarvinnu.

Strandveiðarnar geyma einnig mikilvæg verðmæti að mati Hannesar. „Það er bara svo mikil hætta á að þekking glatist. Þetta er góður skóli til að afla sér upplýsinga um miðin og læra á þau.“ Hann bendir einnig á að veiðarnar séu mikilvægar fyrir sveitarfélagið sem hefur meðal annars tekjur af hafnargjöldum af trillum í smábátahöfninni.

Sævar tekur undir og segir skerðingar í útgefnum aflaheimildum í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar undanfarin ár hafa gert það að verkum að ekki sé verið að landa fiski á Höfn á sumrin, nema þá strandveiðifiski. Benda þeir feðgar á að með þessu fáist töluverð vinna fyrir fiskmarkaðinn, auk þess sem eru afleidd störf sem tengjast vélsmíði og annað sem verður til í kringum rekstur af þessum toga.

Höf.: Gunnlaugur Snær Ólafsson