Vinsæll Sóli Hólm var með 27 sýningar í Bæjarbíói fyrir jólin í fyrra.
Vinsæll Sóli Hólm var með 27 sýningar í Bæjarbíói fyrir jólin í fyrra. — Ljósmynd/Kristvin Guðmundsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Nei, þetta er ekki í lagi. Ég get alveg sagt það,“ segir skemmtikrafturinn og eftirherman Sóli Hólm sem heldur fjölda skemmtana í Bæjarbíói í Hafnarfirði fyrir jólin. Athygli vekur að miðasala á jólaskemmtanir og jólatónleika hefur færst framar á síðustu árum og nú voru Sóli og fleiri komnir af stað áður en ágústmánuður var liðinn.

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

„Nei, þetta er ekki í lagi. Ég get alveg sagt það,“ segir skemmtikrafturinn og eftirherman Sóli Hólm sem heldur fjölda skemmtana í Bæjarbíói í Hafnarfirði fyrir jólin. Athygli vekur að miðasala á jólaskemmtanir og jólatónleika hefur færst framar á síðustu árum og nú voru Sóli og fleiri komnir af stað áður en ágústmánuður var liðinn.

Hamagangur Íslendinga í aðdraganda jólanna er oft með hreinum ólíkindum. Á einum mánuði þurfa allir að hitta alla vinahópa sína minnst einu sinni og smala stórfjölskyldunni saman. Ofan á þetta bætast jólaskemmtanir í skólum, jólaglögg og auðvitað jólahlaðborð. Og þá á vitaskuld eftir að undirbúa og halda blessuð jólin. Síðustu ár hafa jólatónleikar og ýmsar skemmtanir bæst við dagskrána. Úrvalið er með hreinum ólíkindum en ekki virðist áhugann skorta. Nú er svo komið að til að fá forskot á aðra eru margir tónlistarmenn og skemmtikraftar farnir að kynna jóladagskrána og jafnvel að selja miða meðan enn er hásumar. Fyrir rúmum tíu árum byrjaði Björgvin Halldórsson að selja miða á Jólagesti um miðjan október. Í ár voru auglýsingar um jólaskemmtanir áberandi á forsíðu Tix.is í lok ágúst.

„Í raun er bara alveg glórulaust að þetta sé svona en því miður er ég að detta inn í kúltúr sem ég skapaði ekki. Þetta er orðin einhver lenska að ef þú ætlar ekki að brenna inni með prógrammið þitt þá þarftu að byrja að selja miða ósiðlega snemma. Því miður tek ég þátt í þessu,“ segir Sóli sem hefur blandað sér í þennan slag síðustu ár. Raunar var hann einn af sigurvegurum síðustu vertíðar þegar hann var með 27 sýningar í Bæjarbíói í Hafnarfirði í aðdraganda jólanna. Geri aðrir betur. Sóli setti 16 sýningar í Bæjarbíói í sölu í lok ágúst.

Dreifir útgjöldunum

Sóli segir þó að sjá megi jákvæðar hliðar á þessari þróun. Það geti verið hentugt fyrir fólk að koma miðakaupunum frá. „Það getur verið fjárhagslega þægilegt, svona upp á skipulagninguna. Fólk er kannski að fara líka út að borða í tengslum við þetta og fá sér nokkra öllara. Þetta dreifir þá útgjöldunum. Sem hagsýnn heimilisfaðir get ég því sagt að þetta sé frábært,“ segir hann glottandi.

„En miðað við það hvernig salan fer af stað hjá mér virðist fólk ekki vera mjög óánægt með þetta. Það er mikill áhugi. Fólk er ekki reiðara en það.“

Sóli er ekki einn um að vilja ná til fólks snemma. Björgvin Halldórsson er búinn að kynna dagskrá Jólagesta í ár og miðasala er hafin á fjölda tónleika. Þannig er nú hægt að kaupa miða á jólatónleika Siggu Beinteins í Eldborgarsal Hörpu, jólatónleika Sinfóníunnar, Jülevenner með Emmsjé Gauta og sex Þorláksmessutónleika Bubba Morthens víða um land. Þá hefur Geir Ólafsson sett í sölu fimm tónleika með Las Vegas Christmas Show og í vikunni var tilkynnt að Frostrósir yrðu vaktar upp frá dauðum.

Höf.: Höskuldur Daði Magnússon