Mehdi Yarrahi
Mehdi Yarrahi
Íranska poppstjarnan Mehdi Yarrahi hefur verið handtekin af írönsku lögreglunni eftir að Yarrahi sendi frá sér baráttulagið „Roosarito“ þar sem hann hvetur konur landsins til að kasta ­höfuðslæðum sínum

Íranska poppstjarnan Mehdi Yarrahi hefur verið handtekin af írönsku lögreglunni eftir að Yarrahi sendi frá sér baráttulagið „Roosarito“ þar sem hann hvetur konur landsins til að kasta ­höfuðslæðum sínum. Þessu greinir SVT frá og vísar í Radio Free Europé. Rithöfundasamtökin PEN America fordæma handtökuna þar sem hún feli í sér skerðingu á málfrelsi. Í næstu viku, þ.e. 16. september, verður ár liðið síðan hin 22 ára gamla Mahsa Amini lést í kjölfar þess að siðferðislögreglan í Íran handtók hana og misþyrmdi fyrir brot á klæðaburði.