Björg Eva Erlendsdóttir
Björg Eva Erlendsdóttir
Björg Eva Erlendsdóttir, fv. fréttamaður á RÚV, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Landverndar og hefur hún störf í október. Stjórn Landverndar samdi við Björgu Evu, eftir að Auður Önnu-Magnúsdóttir sagði starfi sínu lausu í vor

Björg Eva Erlendsdóttir, fv. fréttamaður á RÚV, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Landverndar og hefur hún störf í október. Stjórn Landverndar samdi við Björgu Evu, eftir að Auður Önnu-Magnúsdóttir sagði starfi sínu lausu í vor.

Í tilkynningu frá Landvernd segir að Björg Eva hafi víðtæka reynslu af rekstri félagasamtaka, reynslu úr fjölmiðlum og úr alþjóðastarfi á norrænum vettvangi. Nú síðast starfaði hún sem framkvæmdastjóri Vinstri-grænna.

Stjórnin metur einnig mikils að í ráðningarferlinu sýndi Björg Eva eldmóð fyrir málefnum náttúru og umhverfisverndar, enda hefur hún tekið þátt í náttúruverndarbaráttu lengst af ævinni,“ segir enn fremur í tilkynningu Landverndar.