Nú stendur yfir Evrópumót iðn-, verk- og tæknigreina, Euroskills, í Gdansk í Póllandi. Á síðasta Evrópumóti, sem fram fór í Búdapest í Ungverjalandi, vann Ísland til silfurverðlauna í rafeindavirkjun. Lansliðshópur Íslands þykir öflugur en keppt er í fjölbreyttum greinum, svo sem bakariðn, framleiðslu, grafískri miðlun, hársnyrtiiðn, iðnaðarstýringum, kjötiðn, matreiðslu, pípulögnum, rafeindavirkjun, rafvirkjun og trésmíði. Um 600 keppendur frá 32 þjóðum etja kappi á Euroskills. „Það er mögnuð stemning og stressið í hámarki,“ sagði Sigurður Borgar Ólafsson liðsstjóri Íslands að loknum fyrsta keppnisdegi. Keppt er í 42 greinum og má búast við um 100 þúsund áhorfendum. „Við erum búin að undrbúa keppendur bæði andlega og líkamlega til að takast á við álagið, Við erum eins og ein fjölskylda.“