— AFP/Daniel Leal
„Mér finnst þetta æðislegt hjá þeim. Þeir geta ekki gert neitt annað, þeir eru bara dæmdir til þess að vera Rolling Stones,“ segir söngvarinn Björgvin Halldórsson í samtali við Morgunblaðið

„Mér finnst þetta æðislegt hjá þeim. Þeir geta ekki gert neitt annað, þeir eru bara dæmdir til þess að vera Rolling Stones,“ segir söngvarinn Björgvin Halldórsson í samtali við Morgunblaðið. Í gær hélt hljómsveitin Rolling Stones blaðamannafund ásamt spjallþáttastjórnandanum Jimmy Fallon þar sem þeir kynntu að 20. október kæmi út fyrsta platan þeirra í 18 ár. Hlaut platan nafnið Hackney Diamonds.