Handknattleiksmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson er genginn til liðs við Selfoss og mun hann leika með liðinu í úrvalsdeildinni á komandi keppnistímabili. Sveinn er 24 ára gamall leikstjórnandi, sem getur einnig spilað margar fleiri stöður
Handknattleiksmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson er genginn til liðs við Selfoss og mun hann leika með liðinu í úrvalsdeildinni á komandi keppnistímabili. Sveinn er 24 ára gamall leikstjórnandi, sem getur einnig spilað margar fleiri stöður. Hann lék með Empor Rostock í þýsku B-deildinni síðasta vetur en áður með Aftureldingu og ÍR. Selfyssingar mæta KA á heimavelli í fyrstu umferð deildarinnar á laugardaginn kemur.