Konan sem lést af slysförum á Vopnafirði aðfaranótt 4. september síðastliðins hét Violeta Mitul. Hún var 26 ára og var leikmaður með knattspyrnuliði Einherja. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að samfélagið á Vopnafirði sé harmi slegið
Konan sem lést af slysförum á Vopnafirði aðfaranótt 4. september síðastliðins hét Violeta Mitul. Hún var 26 ára og var leikmaður með knattspyrnuliði Einherja.
Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að samfélagið á Vopnafirði sé harmi slegið.
„Violeta var góðhjörtuð, dugleg og brosmild. Hún var traustur liðsmaður og fyrirmyndar fótboltakona. Andlát hennar er okkur öllum mikið áfall og skarðið sem hún skilur eftir sig stórt,“ segir í tilkynningu Einherja.
Söfnunarreikningur fyrir fjölskyldu Violetu hefur verið stofnaður í nafni félagsins: 610678-0259 og 0178-05-000594.