Finnar og Danir eru í tveimur efstu sætum H-riðils undankeppni EM karla í fótbolta þegar hún er nákvæmlega hálfnuð. Finnar gerðu góða ferð austur til Kasakstan og sigruðu þar, 1:0, með marki frá Oliver Antman
Finnar og Danir eru í tveimur efstu sætum H-riðils undankeppni EM karla í fótbolta þegar hún er nákvæmlega hálfnuð. Finnar gerðu góða ferð austur til Kasakstan og sigruðu þar, 1:0, með marki frá Oliver Antman. Fjórði sigur Finna í fimm leikjum.
Danir unnu San Marínó auðveldlega, 4:0, á Parken. Pierre-Emilie Höjbjerg, Joakim Maehle, Jonas Wind, Yussuf Poulsen skoruðu og Christian Eriksen lagði upp tvö markanna.