— Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kínverska sendiráðið á Íslandi stóð fyrir menningardagskrá í Háskólabíói síðdegis á miðvikudag. Hátíðin hófst á tónlistarflutningi og sýningu á kínverskum málverkum. Einnig var sýndur pappírsskurður og góðgerðarsala fór fram á kínversku snakki og handverki

Kínverska sendiráðið á Íslandi stóð fyrir menningardagskrá í Háskólabíói síðdegis á miðvikudag. Hátíðin hófst á tónlistarflutningi og sýningu á kínverskum málverkum. Einnig var sýndur pappírsskurður og góðgerðarsala fór fram á kínversku snakki og handverki. Var salan í þágu mjaldranna í Vestmannaeyjum, Litlu-Gráar og Litlu-Hvítar.

Listafólk frá Guangzhou Art Ensemble voru með dans- og söngatriði, bardagafimi og loftfimleika og léku sér með stangarbrúður eins og meðfylgjandi mynd sýnir. Í lokin bauð sendiráðið gestum upp á léttar veitingar við undirleik.

Kínverjar hafa áður verið með menningardagskrá af þessu tagi hér á landi, sem ætlað er að kynna kínverska menningu fyrir Íslendingum.