Hvalavertíð Frá vinnslustöð Hvals hf. í Hvalfirði á síðasta ári.
Hvalavertíð Frá vinnslustöð Hvals hf. í Hvalfirði á síðasta ári. — Morgunblaðið/Eggert
Hvalveiðiskipin Hvalur 8 og Hvalur 9 koma til hafnar í dag með þrjár langreyðar eftir fyrsta túr vertíðarinnar. Veiðarnar gengu vel þrátt fyrir blindþoku og leiðindaveður. Hvalur 8 með einn og Hvalur 9 með tvo

Hvalveiðiskipin Hvalur 8 og Hvalur 9 koma til hafnar í dag með þrjár langreyðar eftir fyrsta túr vertíðarinnar. Veiðarnar gengu vel þrátt fyrir blindþoku og leiðindaveður. Hvalur 8 með einn og Hvalur 9 með tvo.

Guðmundur F. Gunnlaugsson, stöðvarstjóri í hvalstöðinni í Hvalfirði, segir veiðarnar hafa gengið nokkuð vel þrátt fyrir aðstæður.

Halda ekki strax út aftur

„Það gengur verr þegar er lítið skyggni,“ segir Guðmundur sem var á leið í hvalstöðina til að undirbúa komu skipanna þegar Morgunblaðið náði tali af honum í gærkvöldi.

Aðspurður sagði Guðmundur ólíklegt að skipin færu strax aftur út á miðin þegar þau væru búin að skila af sér langreyðunum. Er það vegna óhagstæðra veðurskilyrða næstu daga.

„Það er bræla fram undan þannig að það er ólíklegt að þeir fari strax aftur út,“ sagði Guðmundur.

Veður og mótmæli töfðu

Bátarnir héldu til veiða á miðvikudag. Hvalveiðar voru heimilaðar á ný 1. september en Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra stöðvaði veiðar á langreyðum tímabundið í júní.

Hvalveiðarnar voru heimilaðar á ný með takmörkunum en vertíðin tafðist þó um nokkra daga, fyrst vegna veðurskilyrða en síðan vegna mótmæla. Höfðu þá tveir mótmælendur hlekkjað sig fasta í möstur skipanna í rúman einn og hálfan sólarhring og töfðu veiðarnar um tæpa þrjá daga.