Albert Guðmundsson
Albert Guðmundsson
Rannsókn lögreglu í máli knattspyrnumannsins Alberts Guðmundssonar er á lokastigi. Þetta staðfesti Bylgja Hrönn Baldursdóttir hjá kynferðisbrotadeild lögreglunnar í samtali við Morgunblaðið í gær. Albert, sem er 26 ára gamall, var kærður fyrir kynferðisbrot hinn 22

Rannsókn lögreglu í máli knattspyrnumannsins Alberts Guðmundssonar er á lokastigi.

Þetta staðfesti Bylgja Hrönn Baldursdóttir hjá kynferðisbrotadeild lögreglunnar í samtali við Morgunblaðið í gær.

Albert, sem er 26 ára gamall, var kærður fyrir kynferðisbrot hinn 22. ágúst og var því ekki með íslenska karlalandsliðinu í nýliðnum landsleikjaglugga af þeim sökum.

Í skýrslu starfshóps Ríkissaksóknara um málsmeðferð kynferðisbrota, sem kom út í ágúst árið 2022, kom meðal annars fram að meðalafgreiðslutími kynferðisbrota, árið 2021, væri 343 dagar.

Rannsókn lögreglu í máli Alberts hefur því ekki tekið langan tíma ef tekið er mið af skýrslunni eða einungis 22 daga.

Þegar rannsókninni lýkur verður málið sent á borð ríkissaksóknara sem tekur ákvörðun um hvort ákært verði í því eða það látið niður falla.