„Stundum hefur manni fundist að sársaukaminna væri að gangast undir uppskurð en gangast undir próf.“ Þ.e.a.s. fara í, láta gera á sér, uppskurð; fara í, taka, próf. En hafi maður pissað upp við grindverk og gengist undir sátt í málinu hefur maður samþykkt að ljúka því með sátt. Og jafnvel gengist undir sektargreiðslu.