Blönduós Rútan frá SBA á hliðinni á þjóðveginum skammt sunnan Blönduóss. Mikill viðbúnaður var vegna slyssins, enda margir um borð.
Blönduós Rútan frá SBA á hliðinni á þjóðveginum skammt sunnan Blönduóss. Mikill viðbúnaður var vegna slyssins, enda margir um borð. — Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Búið er að útskrifa alla nema einn af sjúkrahúsi eftir rútuslysið skammt frá Blönduósi sl. föstudag er rúta með 24 farþega innanborðs valt á veginum. Allir farþegarnir ásamt ökumanni voru fluttir á sjúkrahús, sjö á Landspítalann í Reykjavík og aðrir á sjúkrahúsið á Akureyri

Búið er að útskrifa alla nema einn af sjúkrahúsi eftir rútuslysið skammt frá Blönduósi sl. föstudag er rúta með 24 farþega innanborðs valt á veginum.

Allir farþegarnir ásamt ökumanni voru fluttir á sjúkrahús, sjö á Landspítalann í Reykjavík og aðrir á sjúkrahúsið á Akureyri. Farþegarnir voru allir starfsmenn á búsetukjörnum Akureyrarbæjar en þeir voru á leið heim eftir námskeið og ráðstefnu í Portúgal. „Það er einn ennþá á Landspítalanum í Reykjavík og verður þar einhverja daga til viðbótar en aðrir eru komnir heim,“ sagði Karólína Gunnarsdóttir, þjónustustjóri á velferðarsviði Akureyrar, í samtali við mbl.is í gær.

Karólína sagði mismunandi hvernig líðan fólksins væri en ekki væri verið að reka á eftir fólki að mæta aftur til starfa. Hún sagði einhverja hafa skilað sér aftur til vinnu en fleiri hefðu mætt til að sýna sig og sjá aðra. Karólína gerði ráð fyrir að þegar líða tæki á vikuna og öðrum hvorum megin við helgina myndu fleiri mæta til starfa.

„Að lenda í svona slysi tekur auðvitað á fólk. Það eru margir með mar, eru skornir og einhverjir með beinbrot. Það tekur tíma fyrir fólk að ná sér enda hörmuleg upplifun fyrir það að lenda í þessu,“ sagði Karólína.

Að sögn Karólínu hefur verið hlúð vel að fólkinu og því boðin öll sú hjálp sem kostur er á. „Við vorum með áfallahjálp á staðnum strax á föstudaginn og síðan erum við að fara að hitta allan hópinn á morgun [í dag]. Það er búið að bjóða öllum einstaklingsviðtöl líka. Fólk er auðvitað misjafnt. Sumir þurfa á hjálp að halda en aðrir ekki,“ sagði Karólína.