Gömul Gamla góða Laugardalshöllin er komin til ára sinna.
Gömul Gamla góða Laugardalshöllin er komin til ára sinna. — Morgunblaðið/Óttar
Áform um að ný þjóðarhöll fyrir innanhúsíþróttir verði reist í Laugardal árið 2025 munu ekki ganga eftir. Í samtali við Vísi segir Gunnar Einarsson, formaður framkvæmdanefndar um þjóðarhöll, að vonir standi til að þjóðarhöll rísi í fyrsta lagi í árslok árið 2026

Áform um að ný þjóðarhöll fyrir innanhúsíþróttir verði reist í Laugardal árið 2025 munu ekki ganga eftir. Í samtali við Vísi segir Gunnar Einarsson, formaður framkvæmdanefndar um þjóðarhöll, að vonir standi til að þjóðarhöll rísi í fyrsta lagi í árslok árið 2026. Viljayfirlýsing ríkis og borgar um að ráðast í byggingu nýrrar þjóðarhallar í Laugardal var undirrituð 6. maí árið 2022. Í yfirlýsingunni var greint frá því að áformuð verklok væru árið 2025.