Útgerðarfélagið Steinunn ehf. í Ólafsvík hefur gengið frá kaupum á fiskveiðiheimildum sem nema ríflega 100 þorskígildistonnum af Saltveri ehf. í Reykjanesbæ fyrir um 300 milljónir króna. Kvótanum verður bætt við veiðiheimildir vertíðarbátsins Steinunnar SH-167 og aukast með þeim umsvif útgerðarinnar til muna ásamt verkefnum nálægrar landvinnslu. Kaupin eru gerð í framhaldi af sölu á 60% hlut í Steinunni til FISK Seafood fyrir tveimur árum með það að leiðarljósi að efla enn frekar útgerðina á heimaslóðum, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu.
Bræðurnir Brynjar og Ægir Kristmundssynir eiga ásamt fjölskyldum sínum hvor sinn 20% hlut í Steinunni hf. og segist Brynjar sannfærður um að þessi viðbót verði farsæl fyrir heimabyggðina. „Tilgangurinn með sölunni og samstarfinu við FISK Seafood var frá upphafi að styrkja og stækka starfsemina hér í Ólafsvík,“ er haft eftir honum í tilkynningu. „Ég er sannfærður um að þessi fjárfesting verði enn frekari lyftistöng á komandi árum,“ segir hann ennfremur.