Lykilmaður Daniela Wallen hefur verið í lykilhlutverki í Keflavík.
Lykilmaður Daniela Wallen hefur verið í lykilhlutverki í Keflavík. — Morgunblaðið/Eggert
Keflavík er spáð efsta sæti úrvalsdeildar kvenna í körfuknattleik á komandi keppnistímabili í spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna liða í deildinni

Keflavík er spáð efsta sæti úrvalsdeildar kvenna í körfuknattleik á komandi keppnistímabili í spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna liða í deildinni. Spáin var opinberuð á kynningarfundi deildarinnar á Grand hóteli í gær en Keflavík fékk 302 stig af 360 stigum mögulegum. Íslandsmeisturum Vals er spáð þriðja sætinu og Njarðvík öðru. Þá er Snæfelli spáð falli úr deildinni en spána má sjá í heild sinni á mbl.is/sport/korfubolti.