Ólafsfjörður Manndrápið á síðasta ári á leið fyrir héraðsdóm.
Ólafsfjörður Manndrápið á síðasta ári á leið fyrir héraðsdóm. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir manndrápið á Ólafsfirði sem átti sér stað í október á síðasta ári. Þetta staðfestir Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari. Aðeins einn hefur verið ákærður í málinu, sem verður þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra á þriðjudaginn í næstu viku

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir manndrápið á Ólafsfirði sem átti sér stað í október á síðasta ári. Þetta staðfestir Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari.

Aðeins einn hefur verið ákærður í málinu, sem verður þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra á þriðjudaginn í næstu viku. Kolbrún kvaðst ekki geta veitt frekari upplýsingar um ákæruna að svo stöddu.

Aðfaranótt 3. október 2022 var óskað eftir lögregluaðstoð í húsi á Ólafsfirði þar sem maður hafði verið stunginn með eggvopni. Maðurinn var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir árangurslausar endurlífgunartilraunir.

Þrír í varðhaldi

Fernt var handtekið, allt með réttarstöðu sakbornings. Þrennt var látið sæta gæsluvarðhaldi, eiginkona hins látna, vinur hennar og húsráðandi á staðnum. Öll höfðu þau hlotið dóma, ýmist fyrir ofbeldisbrot eða vörslu og smygl á fíkniefnum. Tveir sakborninganna voru látnir lausir á byrjunarstigi rannsóknar og sá grunaði í málinu einnig um mánuði síðar, eða í nóvember sl.

Í júlí sl. var greint frá því að rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra væri lokið og málið væri komið á borð embættis héraðssaksóknara. Ákæran á hendur manninum var gefin út 24. ágúst. hmr@mbl.is