Norður
♠ Á864
♥ G109
♦ Á7
♣ D876
Vestur
♠ D973
♥ –
♦ K108643
♣ Á95
Austur
♠ 2
♥ ÁK76432
♦ G9
♣ 432
Suður
♠ KG105
♥ D85
♦ D52
♣ KG10
Suður spilar 3G.
Bjarni Hólmar Einarsson sat með spil vesturs í úrslitaleik bikarsins á sunnudaginn og opnaði í fyrstu hendi á sjálfu kerfisdjásninu – fjölfætlunni tveimur laufum. Sögnin er yfirleitt sterk, en getur að auki innihaldið veik spil með fjórlit í spaða og lengri rauðum lit til hliðar. Eins og hér.
Aðalsteinn Jörgensen í austur sagði 2♥ og Bjarni lýsti yfir tígli og spaða með 3♦. En Aðalsteinn hélt hjartalitunum til streitu og sögnum lauk í 3♥, tvo niður.
„Þetta var nú ekki það sem ég hafði í huga,“ hugsaði Bjarni og hálfpartinn sá eftir að hafa opnað. En það var óþarfi. Á hinu borðinu passaði vestur í byrjun og Sigurbjörn Haraldsson í norður opnaði á Standard-laufi. Austur stökk í 3♥ og Birkir Jón Jónsson í suður sagði 3G. Tígull út, níu slagir 11 stig til sigursveitar InfoCapital.