Rafbílar Stjórnvöld hafa boðað gjaldtöku af rafbílum frá áramótum.
Rafbílar Stjórnvöld hafa boðað gjaldtöku af rafbílum frá áramótum. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Hörður Vilberg hordur@mbl.is „Það er verið að gera stórar breytingar á kerfinu,“ segir Jón Trausti ÓIafsson forstjóri Öskju um breytingar á gjaldtöku af rafbílum þegar virðisaukaskattur verður lagður á þá um áramótin. Hann segir mikilvægt að kerfið virki.

Hörður Vilberg

hordur@mbl.is

„Það er verið að gera stórar breytingar á kerfinu,“ segir Jón Trausti ÓIafsson forstjóri Öskju um breytingar á gjaldtöku af rafbílum þegar virðisaukaskattur verður lagður á þá um áramótin. Hann segir mikilvægt að kerfið virki.

„Rafbílar eru miklu dýrari en bensín- og díselbílar í framleiðslu. Það er mjög óeðlilegt að skattheimta af þeim bílum sé miklu hærri ef við ætlum að fara í raunveruleg orkuskipti.“

Jón Trausti segir að Orkusjóður hafi auglýst í vor eftir umsóknum um styrki vegna rafknúinna vörubíla þar sem sækja þurfti um fyrir júní. „Núna er kominn 21. september og það er ekki enn búið að úthluta úr þeim sjóði. Ef við ætlum í orkuskipti þá verðum við að hafa kerfi sem vinnur skilvirkt.“

Jón Trausti telur að það sé ekki hægt að styðjast við það sem hann kallar geðþóttaskömmtunarkerfi.

„Það verður að vera einhver vissa og fyrirsjáanleiki til að menn geti gert áætlanir,“ segir hann og bendir á að bílar sem komi til landsins séu framleiddir með löngum aðdraganda. „Núna eru ekki nema 100 dagar til áramóta og það veit enginn almennilega hvernig þetta verður.“

Hann segir að stjórnvöld hafi sett sér metnaðarfull markmið. „En svo vantar stuðninginn.“

Miklir hagsmunir í húfi

Forstjóri Öskju segir að Ísland hafi dregist aftur úr Noregi þar sem rafbílavæðing þjóðarinnar hafi verið tekin föstum tökum.

„Þess vegna eru Norðmenn komnir svona langt og miklu lengra en Íslendingar. Þeir ákváðu að klára þessi orkuskipti og þar er hlutfall rafbíla orðið mun hærra en á Íslandi.“

Umtalsverðir hagsmunir eru í húfi, að sögn Jóns Trausta.

„Núna er verið að panta bíla fyrir milljarða til landsins fyrir næsta ár sem bílaumboðin eru að kaupa inn. Það er alveg óvíst hvernig virðisaukaskattskerfið og vörugjöld verða frá næstu áramótum,“ segir hann.

Orkusjóði er ætlað að standa undir ívilnunum vegna álagningar virðisaukaskatts á rafbíla. Jón Trausti bendir á að sjóðurinn sé með takmarkaða fjármuni og reynslan á þessu ári hafi leitt í ljós að þetta verði ekki skilvirkt.

„Ef það á að panta vörubíl sem kostar 50 milljónir þá verða menn að vita hvað hann mun á endanum kosta. Það pantar enginn í blindni,“ segir Jón Trausti að endingu í samtali við blaðið.