Stephen Gould
Stephen Gould
Bandaríski hetjutenórinn Stephen Gould er látinn aðeins 61 árs að aldri eftir baráttu við krabbamein. Á vef Bayreuth-hátíðarinnar kemur fram að hann hafi fyrst komið þar fram 2004 og sungið nærri 100 sýningar fram til ársins 2022

Bandaríski hetjutenórinn Stephen Gould er látinn aðeins 61 árs að aldri eftir baráttu við krabbamein. Á vef Bayreuth-hátíðarinnar kemur fram að hann hafi fyrst komið þar fram 2004 og sungið nærri 100 sýningar fram til ársins 2022. Gould hóf feril sinn sem baritón og söng um 3.000 sýningar á söngleiknum The Phantom of the Opera eftir Webber áður en hann varð einn eftirsóttasti hetjutenór óperuheimsins og túlkandi Wagner-hlutverka.