Keira Robinson reyndist hetja bikarmeistara Hauka þegar liðið hafði betur gegn Íslandsmeisturum Vals í meistarakeppni kvenna í körfuknattleik á Hlíðarenda á miðvikudaginn
Keira Robinson reyndist hetja bikarmeistara Hauka þegar liðið hafði betur gegn Íslandsmeisturum Vals í meistarakeppni kvenna í körfuknattleik á Hlíðarenda á miðvikudaginn. Leiknum lauk með 78:77-sigri Hauka. Robinson skoraði sigurkörfuna þegar þrjár sekúndur voru til leiksloka en hún skoraði 19 stig í leiknum, tók fimm fráköst og gaf sex stoðsendingar. Tímabilið í úrvalsdeildinni hefst í næstu viku, 26. september, með fjórum leikjum.