Napóleonsskjölin Vinsæl mynd gerð eftir bók Arnaldar.
Napóleonsskjölin Vinsæl mynd gerð eftir bók Arnaldar. — Ljósmynd/Juliette Rowland
Franska kvikmyndin Soudain, seuls hefur fengið hæstu endurgreiðslu vegna kostnaðar við kvikmyndaframleiðslu hér á landi í ár, tæpar 196 milljónir króna. Þetta kemur fram í nýju yfirliti á vef Kvikmyndamiðstöðvar Íslands

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

Franska kvikmyndin Soudain, seuls hefur fengið hæstu endurgreiðslu vegna kostnaðar við kvikmyndaframleiðslu hér á landi í ár, tæpar 196 milljónir króna. Þetta kemur fram í nýju yfirliti á vef Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Tökur á myndinni, sem Thomas Bidegain leikstýrir og gerð er eftir þekktri bók Autissier, fóru fram hér á landi síðla árs í fyrra, meðal annars við Jökulsárlón.

Næsthæsta endurgreiðslan er vegna Napóleonsskjalanna sem gerð er eftir bók Arnaldar Indriðasonar, 189 milljónir króna. Kvikmyndin The Damned fékk 166 milljónir króna og sjónvarpsþættirnir Heima er best í leikstjórn Tinnu Hrafnsdóttur fengu 172 milljónir króna.

Fjölmargir sjónvarpsþættir sem sýndir hafa verið á íslensku sjónvarpsstöðvunum njóta endurgreiðslu. Þannig voru endurgreiddar 6,5 milljónir vegna framleiðslu Jóladaga Hurðaskellis og Skjóðu, 44 milljónir vegna fimmtu þáttaraðar Venjulegs fólks og Jóladagatalið fékk 57 milljónir króna. Þá fengu þættirnir Hvar er best að búa? átta milljónir, Árni fer til Ameríku 1,4 milljónir og fjórða þáttaröð Kappsmáls 22 milljónir. Þá fékk heimildarmyndin Soviet Barbara tæpar 15 milljónir.