Endurkoma Gylfi Þór Sigurðsson sneri aftur á völlinn í gærkvöldi.
Endurkoma Gylfi Þór Sigurðsson sneri aftur á völlinn í gærkvöldi. — Ljósmynd/Lyngby
Gylfi Þór Sigurðsson lék sinn fyrsta leik sem atvinnumaður í fótbolta í meira en tvö ár er Lyngby og Vejle skildu jöfn, 1:1, á heimavelli Íslendingaliðsins í gærkvöldi. Síðasti leikur Gylfa fyrir leikinn í gær var með Evert­on gegn Manchester City í ensku úr­vals­deild­inni 23

Gylfi Þór Sigurðsson lék sinn fyrsta leik sem atvinnumaður í fótbolta í meira en tvö ár er Lyngby og Vejle skildu jöfn, 1:1, á heimavelli Íslendingaliðsins í gærkvöldi. Síðasti leikur Gylfa fyrir leikinn í gær var með Evert­on gegn Manchester City í ensku úr­vals­deild­inni 23. maí árið 2021. Gylfi kom inn á sem varamaður á 71. mínútu, er hann leysti Sævar Atla Magnússon af hólmi. Andri Lucas Guðjohnsen skoraði mark Lyngby.